top of page
Search

GETTU BETUR STELPUR

Skólafélagið Huginn

Gettu betur-stelpur ætla að halda æfingabúðir í lok sumars fyrir stelpur sem hafa áhuga á spurningakeppnum og/eða góðum félagsskap.

Þær verða yfir helgi í lok ágúst og við viljum endilegafá sem stærstan og fjölbreyttastan hóp stelpna í búðirnar. Yfir þessa helgi munum við gera alls konar skemmtilegt - spila spurningaspil, segja frá tækni við æfingar, halda spurningakeppni, fræðast, fara í ratleik, borða saman, spjalla og kynnast. Þann 7.maí blásum við til kynningar og skemmtilegheita í Menntaskólanum á Akureyri. Við ætlum að segja aðeins frá æfingabúðunum og verja svo restinni af tímanum í spurningaspil og stuð! Allar stelpur úr 9. bekk, 10. bekk og úr framhaldsskóla, frá öllu Norðurlandi velkomnar í þetta stuð. Vonumst til að sjá sem flestar! Semsagt: 7. maí kl 15:30 Gettu betur stelpur Menntaskólinn á Akureyri Sjáumst!!!

 
 
 

Comments


HUGINNSIDA.png
  • Facebook
  • Instagram

Skólafélag Menntaskólans á Akureyri
Eyrarlandsvegi 28
600 Akureyri

bottom of page